You are currently browsing the category archive for the 'Markaður' category.
Category Archive
Bobby Breiðholt – villt og tryllt!
mars 2, 2009 in 1, Bar og kaffi, Markaður, Vörur, Úr fjölmiðlum | Tags: Bobby Breiðholt | Skrá ummæli
Risa spámaðurinn og diskótekarinn Bobby Breiðholt ætlar að ryðja nýtísku ofurmúsík í bland við gamalt og gott hér á Hemma&Valda á föstudaginn (6. mars). Ekki láta þig vanta í þetta eðal partý.
Jólahátíð og styrktarkvöld!
desember 17, 2008 in Bar og kaffi, Events, Hemmi&Valdi, Markaður | Skrá ummæli
Það verður nóg um að vera á laugardaginn í Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda. Í portinu verða félagarnir í Sprengjuhöllini með spilerí og ristaðar hnetur. Inn ætla stelpurnar í Þrem röddum að taka nokkur lög og Bogomil mætir í einstaklega hressilegu hátíðarskapi. Svo er það Jóla DJ Duó sem lokar kvöldinu.
Við verðum með til sölu varning til styrktar Blátt Áfram og hluti af sölu rennur til styrktar þess góða málefnis.
Að lokum verður í tilefni dagsins boðið uppá sérstaklega “styrkt” jóla kakó á góðu verði.
Kíkið við og yljið ykkur við frábæra dagskrá og styrkið frábært málefni!
Sara – Hemmi&Valdi
Blátt Áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. - www.blattafram.is




