You are currently browsing the category archive for the 'Hemmi&Valdi' category.

Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda verður með styrktardag/kvöld laugardaginn 20. desember fyrir samtökin Blátt Áfram. Valdi var á línunni hjá Rúnari fimmtudaginn 18. desember.

Spjallið hér.

Meðal þess sem verður á boðstólnum:
Stelpurnar í 3 röddum munu syngja nokkur vel valin jólalög, Sprengjuhöllin verður á svæðinu, Bogomil og félagar spila hinsegin jólalög og kvöldið endar á jóla-dj-dúett.

Viljiru styrkja málefni þá verða jólakort og bláu slaufurnar frá Blátt áfram til sölu á staðnum. Þá mun hluti af sölu veitinga rennur til samtakanna og einnig er hægt að afla sér upplýsinga um hvernig styrkja megi samtökin með frjálsum framlögum.

Blátt Áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi.

Það verður nóg um að vera á laugardaginn í Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda. Í portinu verða félagarnir í Sprengjuhöllini með spilerí og ristaðar hnetur. Inn ætla stelpurnar í Þrem röddum að taka nokkur lög og Bogomil mætir í einstaklega hressilegu hátíðarskapi. Svo er það Jóla DJ Duó sem lokar kvöldinu.

Við verðum með til sölu varning til styrktar Blátt Áfram og hluti af sölu rennur til styrktar þess góða málefnis.

Að lokum verður í tilefni dagsins boðið uppá sérstaklega “styrkt” jóla kakó á góðu verði.

Kíkið við og yljið ykkur við frábæra dagskrá og styrkið frábært málefni!

Sara – Hemmi&Valdi

Blátt Áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. - www.blattafram.is

dd_unitÁ morgun, föstudagskvöld, verðr trellað DD party á Nýlenduverzluninni. DD-Unit náði að tæma barinn af áfengi en troð fylla kofann af fólki seinast þegar hún var á svæðinu. Ekki klikka á þessari klellun! Tilboð á barnum og allir að dansa, ekki láta þig vanta!

Það er bara þannig að nú er helgin sem var ný liðin og önnur að renna upp. Fyrst þá vil ég þakka öllum sem kíktu við seinustu helgi að gera líklega bestu stemningu sem hefur fyllt kofann frá því Sjóklæðagerðin var og hét. Bæði DD og Zúri voru frábær og til dæmis, þá kláraðist allt vín í húsinu á föstudagskvöldið sem hefur aldrei gerst. Sannkallað kreppu tjútt!

Um helgina er aftur frábær dagskrá en snillingurinn Kristinn Gunnar Blöndal, betur þekktur sem KGB ætlar að spila á föstudag og hann kann að stilla upp sveittu partýiiiii.

Á laugardag, þá er komið að Mr. Sillu sem ætlar að byrja á live setti og færir sig svo á plötuspilarana þegar líða tekur á kvöldið. Öskrandi gleði þar.

Sem fyrr er gengisvísitalan á áfengi langt undir því sem þekkist, 0,5 l af Viking á 550 kjell. 0.9 l af Viking 800 kall og Jólabjórinn er kominn!

Sjáumst!

Það er ótrúlegt til þess að hugsa hvað verður gaman um helgina á Nýlenduvöruverzluninni. Bjórinn á frábæru verði og mögnuð músík! Við höldum áfram með Októberfest stemmarann og 0.9l af Viking kosta litlar 800 kr. sem ku vera heimsmet miða við höfðatölu.

Föstudagsköld: Tom trubadour beint eftir vinnu. Tom spilar vel valin og jafnvel sérvalin lög á milli 19 – 21. Þá er það meistarinn Steini Frank, eða Steini Stripp eins og sumir þekkja hann. Steini kann að hnoða saman sjóðandi partýi.

Laugardagskvöldið: Allir eiga að þekkja Zúra gæjan sem hefur kynnt þjóðinni allt það sem hún þekkir í músik.

Staðurinn hefur verið tekinn í gegn, fleiri sæti og meira stuð.

Láttu sjá þig og vertu góð/ur við vini þína og segðu þeim að koma líka.

Við erum búin að vera ákaflega löt við að uppfæra þetta blessaða blogg, ástæðan er kanski helst sú að Hemmi er búinn að vera í sumarfríi og ekki með tölvuna í trýninu á hverjum degi :)

Allavega, hellingur i gangi. Gallerý LOFT opnaði um daginn. Halldór Sturlu opnaði málverka-sýningu sem var mjög vel sótt. Nú stendur yfir ljósmyndasýning og þar er það litli Fransmaðurinn Bruno sem sýnir myndirnar sýnar. Nú þegar er stór hluti mynda Brunos seldar.

Kíkið í heimsókn, við höfum verið að uppfæra veitingalistann okkar og nú má fá dýrindis samlokur, heita samlokur og nachos og með því.

Stórsnillingurinn Jon Jonsson leikur magnaða slagara eftir sjálfan sig í Nýlenduvöruverzluninni fimtudaginn 10. júlí.

Ekki láta þig vanta á þennan magnaða viðburð. Tveir fyrir einn á milli 20 – 21. Sumsé LÍTER af bjór á 550 kall.

Hér er svo hægt að hita upp fyrir meistara Jón Ragnar -> Myspace.com/jonjonsson

Jæja núna er þetta loksins orðið að veruleika  1/2 líter af ísköldum Viking kostar í kvöld á milli 21:00 og 22:00 það sama og líter af dísil í afgreiðslu, heilar 198 kr.  Aðeins er um að ræða 1stk kút og því fyrstir koma fyrstir fá.  Aðeins einn öl á mann í einu.

Verzlunin á tveggja vikna afmæli sem er frábært. Í tilefni dagsins, þ.e á föstudaginnn 6. júní, þá ætlum við að bjóða bjór í könnu a 2000 kr. TVEIR og HÁLFUR lítrar á TVÖ þúsund sem getur varla talist mikið eins og staðan er í dag.

Óvænt dagskrá föstudags og laugardagskvöld og markaðurinn fer að rúlla. Sjáumst!

Hvað er hægt að segja annað þegar önnur eins gleði er í boði. Í kvöld ætlum við sumsé að bjóða gestum og gangandi uppá rauðvínsflösku og ostabakka á aðeins 3.000,- krónur. Slöktu á Jay Lenno og dragðu kallinn í rómantíkina.

Sjáumst!

Verzlun

Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda (Verzlunin) is a friendly coffeehouse / bar in the heart of Reykjavík. The atmosphere is laid back and cozy. During the day excellent coffee and buns are on offer, but at night beer and wine are the choice at prices that can't be beat in this town.

Myndir

Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda

Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda

Glugginn góði!

More Photos

Top Posts

  • None

Blog Stats

  • 6,904 hits

 

desember 2009
M Þ M F F L S
« apr    
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031  

Nýlenduvöruverslunin

Nýlenduvöruverslun Hemma&Valda er staðsett á Laugavegi 21 í gamla Hljómalindarhúsinu við Sirkús torgið. Andrúmsloftið er skemmtilegt innandyra þar sm gestir geta fengið sér kaffi, gos, léttvín og bjór sem og aðrar veitingar eins og kökur og brauðmeti. Þá er gott úrval skemmtilegra hluta sem allir eru til sölu, bæði húsgögn, hjól og hönnun. Í Sirkús-portinu verður svo starfræktur markaður í sumar. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum verlsun@trailiceland.com.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=VqrnG25bsXU&hl=en&fs=1]