You are currently browsing the category archive for the 'Bar og kaffi' category.

Svona verður opið um skana á Hemma&ValdaPáskaungar

Miðvikudagur, party fram á nótt….

Fimmtudagur opið til miðnættis.

Föstudagur opið frá 13.00, party eftir svona 24.00.

Laugardagur = venjulegur laugardagur og party fram á nótt.

Sunnudagur = páskaparty og allir að dansa…

Mánudagur = allir dansa annan í páskum…

bobby1Risa spámaðurinn og diskótekarinn Bobby Breiðholt ætlar að ryðja nýtísku ofurmúsík í bland við gamalt og gott hér á Hemma&Valda á föstudaginn (6. mars). Ekki láta þig vanta í þetta eðal partý.

Það verður nóg um að vera á laugardaginn í Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda. Í portinu verða félagarnir í Sprengjuhöllini með spilerí og ristaðar hnetur. Inn ætla stelpurnar í Þrem röddum að taka nokkur lög og Bogomil mætir í einstaklega hressilegu hátíðarskapi. Svo er það Jóla DJ Duó sem lokar kvöldinu.

Við verðum með til sölu varning til styrktar Blátt Áfram og hluti af sölu rennur til styrktar þess góða málefnis.

Að lokum verður í tilefni dagsins boðið uppá sérstaklega “styrkt” jóla kakó á góðu verði.

Kíkið við og yljið ykkur við frábæra dagskrá og styrkið frábært málefni!

Sara – Hemmi&Valdi

Blátt Áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. - www.blattafram.is

dd_unitÁ morgun, föstudagskvöld, verðr trellað DD party á Nýlenduverzluninni. DD-Unit náði að tæma barinn af áfengi en troð fylla kofann af fólki seinast þegar hún var á svæðinu. Ekki klikka á þessari klellun! Tilboð á barnum og allir að dansa, ekki láta þig vanta!

Við erum búin að vera ákaflega löt við að uppfæra þetta blessaða blogg, ástæðan er kanski helst sú að Hemmi er búinn að vera í sumarfríi og ekki með tölvuna í trýninu á hverjum degi :)

Allavega, hellingur i gangi. Gallerý LOFT opnaði um daginn. Halldór Sturlu opnaði málverka-sýningu sem var mjög vel sótt. Nú stendur yfir ljósmyndasýning og þar er það litli Fransmaðurinn Bruno sem sýnir myndirnar sýnar. Nú þegar er stór hluti mynda Brunos seldar.

Kíkið í heimsókn, við höfum verið að uppfæra veitingalistann okkar og nú má fá dýrindis samlokur, heita samlokur og nachos og með því.

Stórsnillingurinn Jon Jonsson leikur magnaða slagara eftir sjálfan sig í Nýlenduvöruverzluninni fimtudaginn 10. júlí.

Ekki láta þig vanta á þennan magnaða viðburð. Tveir fyrir einn á milli 20 – 21. Sumsé LÍTER af bjór á 550 kall.

Hér er svo hægt að hita upp fyrir meistara Jón Ragnar -> Myspace.com/jonjonsson

Jæja núna er þetta loksins orðið að veruleika  1/2 líter af ísköldum Viking kostar í kvöld á milli 21:00 og 22:00 það sama og líter af dísil í afgreiðslu, heilar 198 kr.  Aðeins er um að ræða 1stk kút og því fyrstir koma fyrstir fá.  Aðeins einn öl á mann í einu.

Verzlunin á tveggja vikna afmæli sem er frábært. Í tilefni dagsins, þ.e á föstudaginnn 6. júní, þá ætlum við að bjóða bjór í könnu a 2000 kr. TVEIR og HÁLFUR lítrar á TVÖ þúsund sem getur varla talist mikið eins og staðan er í dag.

Óvænt dagskrá föstudags og laugardagskvöld og markaðurinn fer að rúlla. Sjáumst!

Hvað er hægt að segja annað þegar önnur eins gleði er í boði. Í kvöld ætlum við sumsé að bjóða gestum og gangandi uppá rauðvínsflösku og ostabakka á aðeins 3.000,- krónur. Slöktu á Jay Lenno og dragðu kallinn í rómantíkina.

Sjáumst!

Og ekki úr vegi að fá sér einn ískaldann á góðu verði eða hvítvínsflösku á enn betra verði eða jafnvel veðri.

Viking bjór á krana 550,- kr. Viking Stout, Carlsberg, Viking Lite og Corona Extra á 600,- kr og svalandi hvítvínsflaska 1900,- kr.

Gleðilega SÓL!

Verzlun

Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda (Verzlunin) is a friendly coffeehouse / bar in the heart of Reykjavík. The atmosphere is laid back and cozy. During the day excellent coffee and buns are on offer, but at night beer and wine are the choice at prices that can't be beat in this town.

Myndir

Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda

Nýlenduvöruverzlun Hemma&Valda

Glugginn góði!

More Photos

Top Posts

  • None

Blog Stats

  • 6,904 hits

 

desember 2009
M Þ M F F L S
« apr    
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031  

Nýlenduvöruverslunin

Nýlenduvöruverslun Hemma&Valda er staðsett á Laugavegi 21 í gamla Hljómalindarhúsinu við Sirkús torgið. Andrúmsloftið er skemmtilegt innandyra þar sm gestir geta fengið sér kaffi, gos, léttvín og bjór sem og aðrar veitingar eins og kökur og brauðmeti. Þá er gott úrval skemmtilegra hluta sem allir eru til sölu, bæði húsgögn, hjól og hönnun. Í Sirkús-portinu verður svo starfræktur markaður í sumar. Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum verlsun@trailiceland.com.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=VqrnG25bsXU&hl=en&fs=1]