Við erum búin að vera ákaflega löt við að uppfæra þetta blessaða blogg, ástæðan er kanski helst sú að Hemmi er búinn að vera í sumarfríi og ekki með tölvuna í trýninu á hverjum degi :)

Allavega, hellingur i gangi. Gallerý LOFT opnaði um daginn. Halldór Sturlu opnaði málverka-sýningu sem var mjög vel sótt. Nú stendur yfir ljósmyndasýning og þar er það litli Fransmaðurinn Bruno sem sýnir myndirnar sýnar. Nú þegar er stór hluti mynda Brunos seldar.

Kíkið í heimsókn, við höfum verið að uppfæra veitingalistann okkar og nú má fá dýrindis samlokur, heita samlokur og nachos og með því.