Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda
„Fólk er mjög ánægt með bjórverðið hjá okkur, en ekki er hægt að segja að sama ánægja ríki með eldsneytisverðið,“ segir Valdimar Halldórsson, einn eigenda Nýlenduvöruverslunar Hemma & Valda, sem í fyrradag seldu bjórinn á díselverði, eða…
Eins konar menningarstarfsemi
Þeir félagar opnuðu staðinn fyrir rúmum mánuði, sem staðsettur er í gamla Hljómalindarhúsinu við Laugaveg 21. Þeir selja frekar óhefðbundnar vörur, bjór, barnaföt, reiðhjól og ermahnappa svo fátt eitt sé nefnt. „Við erum opnir fyrir allri hönnun, fyrir þá sem vilja selja hjá okkur, en annars er þetta bar og kaffihús líka. Við höldum tónleika og ýmsa menningarviðburði líka.“En eru það góð viðskipti að selja bjór á afslætti í kreppuástandi?
„Við prófuðum aðeins aðra útfærslu á þessu á kvenréttindadaginn, þegar við veittum konum sérstakan afslátt. Það gafst mjög vel, þó svo um hafi verið að ræða jákvæða mismunun! Þá heyrðum við af því, að erlendis væri bensínið orðið dýrara en bjórinn og þá stukkum við til og vorum með einn kút á tilboði milli 9 og 10. Við auglýstum þetta bara á heimasíðunni okkar, verzlun.com, en þetta hefur gefist vel og mun vera eitthvað áfram í sumar,“ segir Valdi, sem vonar bara að bensínið hækki enn þá meira. „Já, það væri ekki ónýtt fyrir okkur, þá kannski getum við haldið þessu réttu megin við núllið!“
traustis@24stundir.is






No comments yet
Comments feed for this article