Beint í meginmál síðu.



Fréttablaðið, 10. jún. 2008 05:00

mynd
Vinsælt í asíu Valdimar Geir með City Surfer-hjólið samanbrotið. Fréttablaðið/Arnþór

Gamla Hljómalindarhúsið að Laugavegi 21 iðar nú af lífi á ný því tvenn hjón reka þar Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda. Meðal þess sem boðið er upp á eru handhæg íslensk reiðhjól sem má brjóta saman.

Þau heita City Surfer og kosta 12.900 kr. stykkið. Hjólin eru einnig leigð út.

„Hugmyndin kviknaði þegar við ákváðum að sniðugt væri að vera með hjólaleigu í miðbænum,” segir Valdimar Geir Halldórsson, einn eigandanna. „Ég og konan mín höfðum kynnst þessari tegund reiðhjóla í Asíu þar sem þau eru miklu algengari en venjuleg hjól. Það meikar sens út af plássleysinu. Við fórum því í það að finna framleiðanda og við hönnuðum hjólið út frá því stelli sem framleiðandinn gat boðið.”

Útkoman er þrettán kílóa gíralaust borgarhjól, sem samanbrotið kemst auðveldlega í skottið á smábíl. Þau eru framleidd í Kína og voru hundrað hjól búin til í fyrstu pöntun. „Þetta hefur gengið mjög vel.

Ferðamannaverslunin Víkingur á Akureyri keypti til dæmis tíu stykki og leigir út. Við munum panta 100 stykki í einu og hjólin verða alltaf mismunandi í hverri pöntun. Það koma jafnvel gírar á endanum.”
Sé fólk spennt fyrir City Surfer-hjólinu er prufuhjól á staðnum.

Nýlenduvöruverzlunin býður að auki upp á veitingar, hönnunarverslun og húsgagnasölu í samvinnu við Góða hirðinn. „Óreglan skapar hamingjuna,” segir Valdimar um úrvalið. „Við náum í ný húsgögn alla miðvikudaga og þá sækir fólk líka það sem það hefur keypt. Svo verður markaður opnaður hér í portinu um næstu helgi.”

Nýlenduvöruverzlunin er með leigusamning út september en þá taka væntanlega byggingarframkvæmdir við á svæðinu.- glh