Kæru vinir, nú erum við loks að loka þessum opnunar ferli. Það er sumsé búið að vera opið í viku og í dag fékk Nýlenduvöruverslunin vínveitingaleyfi sem þýðir hvað? Jú allar dælur og kælar eru orðnir fullir.
Við erum að selja Viking á krana, Carlsberg, Viking Stout (Sem er snilld!), Corona og Viking Light í gleri. Bjórinn á krana kostar litlar 550 krónur, næstum hægt að segja “á gamla genginu!”.
Þá erum við með rautt og hvítt og seljum það eingöngu í flösku-vís. Flaskan kostar ekki nema 1900 kr sem er rétt um 380 krónur glasið.
Endilega kíkið við og skoðið vörurnar okkar, smakkið kaffið okkar og hellið í ykkur smá öl.
Á laugardaginn ætlar KGB að sjá um tónlistina.





No comments yet
Comments feed for this article