Nú er það þannig að við viljum vera menn og konur fólksins. Verzlunin á að endurspegla það með vinalegu yfirbragði. Við viljum fá ykkar hugmyndir hversu skrítnar þær kunna að hljóma. Þá erum við alltaf að leita að sniðugum vörum til að selja í Verzluninni.

Ekki hika við að hafa samband með tölvupósti á verslun@trailiceland.com eða bara mæta á svæðið með góssið eða pælinguna.

Núna til dæmis erum við með ágætis rými á efri hæð hússins sem við erum að pæla í hvernig best væri að nýta það.

Ef þú ert í hljómsveit, ert trúbador, litamaður/kona, dj eða eitthvað allt annað og villt koma fram eða sýna, hafðu samband.

Hugmyndir vel þegnar.