Laugardaginn næstkomandi þann 24 maí munum við nú loksins reyna að opna með látum að Laugarvegi 21 Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda. Margt mun vera á boðstólnum í sumar en til gamans má geta að starfræktur verður markaður í portinu hjá okkur 4 daga vikunnar. Einnig erum við með í samstarfi við Góða Hirðinn sölu á húsgögnum þannig að allt sem augun vitja inni á bar hjá okkur er til sölu. Hljómsveitir munu kíkja við og spila, haldin verða böll á kvöldin, útibíó og jafnvel einn góður kappakstur í kassabílum niður Laugarveginn seinna í sumar sem og hjólreiðarkeppnin TOUR de 101 sem brátt mun verða víðfræg svo vægt sé tekið til orða. Ekki má gleyma að starfrækt verður leiga sem og sala á City Surfer hjólunum sem slegið hafa rækilega í gegn undanfarið.
Þeir sem vilja panta sölubás er velkomið að hafa samband í gengum vefpóstinn trailiceland@trailiceland.com. En ekki hika því básarnir eru ódýrari en gengur og gerist.
Nýlenduvöruverlsun Hemma & Valda opnun Laugardaginn 24 maí á slaginu 12:00 lokar klukkan 01:00. Látt sjá þig.






No comments yet
Comments feed for this article